|
Smáeyjar eru fjórar eyjar vestan Heimaeyjar. Syðst
er Hæna, þá Hani (hæstur: 97 m), Hrauney og Grasleysa. Sundið milli
Smáeyja og Heimaeyjar er greiðfær bátum. Kafhellir í Hænu er
talinn fallegasti hellir úteyjanna. Kvöldsólin slær fögrum
litbrigðum inn í hann. Gjarnan er siglt inn í hann, þegar kyrrt er
í sjó og lágsjávað. Dýpi í hellinum er mikið og birtu bregður
inn um lítið op neðansjávar að norðanverðu.
Sögð er saga af manni, sem féll útbyrðis af bát sinum og sogaðist í
gegnum þetta gat inn í hellinn. Þegar hann kom úr kafinu í hellinum, var bátur hans kominn þangað, svo að hann gat
kraflað sig um borð aftur. Í stórbrimi hafa gróðurflesjur á eyjunum
skolast burt. |