|
Súðavíkurhreppur er nokkurs konar smækkuð mynd Vestfjarða, þar sem hver fjörður
og nes hefur sitt séryfirbragð og náttúrunnendur geta valið úr fjölmörgum
gönguleiðum, fuglaskoðun, veiði í vötnum, ám eða stundað
sjóstangaveiði. Íbúar Súðavíkur hafa undanfarin ár
staðið í ströngu við enduruppyggingu bæjarins eftir snjóflóð, sem féll
kl. 06:25 hinn 16. janúar 1995.
Fjórtán fórust og tólf var bjargað..
Í Súðavík hefur risið ný byggð, sem býður
þjónustu í nýjum og glæsilegum húsum skammt frá gamla bænum,
sem verðugt er að skoða. Atvinnulífið er í blóma og tekjur með því hæsta sem
gerist á landinu.
Vegalengdin frá Reykjavík er 441 km.
Ísafjörður 22 km <Súðavík>
Heydalur 113 km.
.
|