|
Suðureyri við Súgandafjörð er vinalegt kauptún á sandeyri
undir fjallinu Spilli við sunnanverðan fjörðinn. Við
fjörðinn norðanverðan (Norðureyri)
nær trjágróður og annar gróður hátt upp í fjallshlíðarnar.
Útgerð og fiskvinnsla eru
uppistaða atvinnulífs, en þjónusta við gesti og gangandi eykst og er um
margt að velja, hvort sem er fyrir náttúruskoðendur
eða veiðiáhugafólk. Eins og á Flateyri má eyða mörgum dögum á Suðureyri og
nágrenni til gönguferða og skoðunarferða almennt.
Vegalengdin frá Reykjavík er 501 km um
Hvalfjarðargöng.
Flateyri 28 km <Suðureyri> Ísafjörður
23 km.
.
|