|
Þingeyri við Dýrafjörð er elzti verzlunarstaður í V.- Ísafjarðarsýslu.
Þar er góð höfn og kauptúnið fór að myndast á síðari hluta 18.
aldar. Þar er eitt af elztu húsum
landsins,
pakkhús frá því fyrir miðja 18. öld. Útgerð og fiskvinnsla er hér sem annars
staðar á Vestfjörðum helzti atvinnuvegurinn, en
þjónusta við ferðamenn eykst og stendur nú margt til boða og má þar telja
meðal margs annars, ökuferð upp á Sandafell til að njóta stórfenglegs
útsýnis.
Dalir skera þar tilkomumikil fjöll og helstan
má nefna Haukadal en við hann er Kaldbakur hæsta fjall Vestfjarða.
Vegalengdin frá Reykjavík er 429 km um
Hvalfjarðargöng.
Bíldudalur 96 km <Þingeyri>
Flateyri
40 km.
.
|