Þorskastríðin,

Söfn á Íslandi


Gönguleiðir Ísland

4 mílur - Deilurnar 1948-56 VARÐSKIPIÐ ÞÓR 50 mílur - Átökin 1972-73

ÞORSKASTRÍÐIN
12 mílur - átökin 1958-61

.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

1957
12. apríl - Ráðstefna haldin í Reykjavík um aðgerðir í landhelgismálum.

1958
24. maí - Lúðvík Jósepsson sjávarútvegsráðherra tilkynnir samkomulag ríkisstjórnarinnar um útfærslu landhelginnar í 12 mílur.

30. júní - Sjávarútvegsráðherra undirritar reglugerð um 12 mílna landhelgi.

1. sept. - Reglugerðin gengur í gildi. Þrátt fyrir það halda breskir togarar áfram veiðum og njóta verndar breskra herskipa.

2. sept. - 9 skipsverjar á varðskipinu Þór teknir höndum og fluttir um borð í brezku freigátuna Eastbourne, er þeir hyggjast taka togarann Northern Foam. Múgur og margmenni safnast saman við Breska sendiráðið í Reykjavík.

4. sept. - Fjölmennur útifundur haldinn á Lækjartorgi þar sem bresku ofríki er mótmælt og hvatt til einurðar og festu í baráttunni fyrir rétti þjóðarinnar. Kínverska alþýðulýðveldið færir landhelgi sína úr 3 sjómílum í 12.

5. sept. - Skipherrann á herskipinu HMS Russel sakar skipherrann á Ægi um að hafa reynt að sigla herskipið niður.

13. sept. - Freigátan Eastbourne siglir inn á Faxaflóa í skjóli nætur og skýtur út árabáti. Íslensku varðskipsmönnunum er skipað að fara í bátinn og róa 2 sjómílur til lands.

12. nóv. - Enn kemur til átaka þegar Þór reynir að taka togarann Hackness. Skipherrann á HMS Russel hótar að sökkva varðskipinu.

1959
6. feb. - Eftir fjögurra daga stapp á miðunum tekst varðskipinu Þór að færa brezka togarann Valafell til hafnar. Breskt herskip tafði um hríð að hann yrði tekinn innan 4 mílna. Dómur kveður á um 74 þús. króna sekt og að afli og veiðarfæri verði gerð upptæk. Furðu vekur meðal Íslendinga hversu vægur dómurinn er.

1960
3. mars - Breskir togarar sýna yfirgang, er þeir toga yfir netatrossur báta í Ólafsvík og valda miklu tjóni.
14. mars - Til að bæta andrúmsloftið á hafréttarráðstefnunni sem hefst eftir 3 daga í Genf færa breskir togarar sig út fyrir landhelgina.

26. mars - Hafréttarráðstefnunni lýkur án samkomulags. Bretar senda herskip aftur á miðin.

30. apríl - Ríkisstjórn Íslands gefur upp sakir breskum togaraskipstjórum, sem uppvísir hafa orðið að landhelgisbrotum á tímabilinu 1. sept. 1958 til

29. apríl 1960.

1961
11. mars - Endi bundinn á þorskastríðið með samningi, sem hljóðar upp á að Bretar viðurkenna 12 mílna lögsögu en fá að veiða á ytri 6 mílunum á tilteknum tímum næstu þrjú ár.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM