Þorskastríðin,

Söfn á Íslandi


Gönguleiðir Ísland

VARÐSKIPIÐ ÞÓR

ÞORSKASTRÍÐIN
200 mílur - Átökin 1975-76

.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

1975
15. júlí - Matthías Bjarnason sjávarútvegsráðherra gefur út reglugerð um að fiskveiðilögsagan verði færð út í 200 mílur 15. okt., en þann 13. nóv. átti bráðabirgðasamningur við Breta frá því í 50 mílna deilunni að renna út.  Brezkir útgerðarmenn mótmæla hástöfum og stjórn Vestur-Þýskalands og Efnahagsbandalag Evrópu láta í ljós óánægju.

15. okt. - Fiskveiðilögsagan færð út í 200 mílur.

nið á Lloydsman, því fyrsta í 200 mílna deilunni.

16. nóv. - Þór sker á víra togarans Primella, fyrsta skiptið sem klippunum er beitt í deilunni.
17. nóv. - Samningaviðræður fara út um þúfur. Bretar senda dráttarbáta á íslenzku fiskimiðin.
25. nóv. - Samið við Vestur-Þjóðverja um takmarkaðar veiðiheimildir. Bretar senda þrjár freigátur á miðin.

6. des. - Dráttarbáturinn Euroman siglir á Þór, eftir að hann hafði klippt á víra togara.

10. des. - Þór og freigátan Falmouth eigast við í rúma klukkustund á Vopnafjarðargrunni.

11. des. - Þór skemmist talsvert við ásiglingar þriggja breskra dráttarbáta í mynni Seyðisfjarðar. Þeir linna ekki látunum fyrr en Þór skýtur kúluskoti í stef

1976
7. jan. - Freigátan Andromeda siglir harkalega á Þór. Mildi þykir að ekki urðu slys á mönnum, en skipið skemmdist nokkuð. Tveimur dögum síðar lendir Þór í enn alvarlegri átökum er herskipið Leander siglir á varðskipið af miklu afli eftir fjölmargar tilraunir.

11. jan. - Suðurnesjamenn loka herstöðvarhliðum á Keflavíkurflugvelli í mótmælaskyni við framferði herskipanna.

19. jan. - Ríkisstjórnin hótar að slíta stjórnmálasambandi við Bretland.  Brezk stjórnvöld kalla herskip sín út fyrir 200 mílur og bjóða Geir Hallgrímssyni forsætisráðherra til viðræðna í London. Þær skila ekki árangri og 5. feb. halda bresk herskip aftur á miðin.

19. feb. - Stjórnmálasambandi við Bretland slitið. Fastaráð NATO fundar um málið.

6. maí - Mikil harka einkenndi deiluna. Freigátan Falmouth sigldi tvívegis af krafti á Tý.

23. maí - Fundahöld í Osló þar sem ráðherrar þjóðanna ræða hugsanlegt samkomulag.

Júní - Samkomulag um takmörkuð veiðiréttindi Breta í 6 mánuði. Eftir það mega þeir aðeins veiða innan 200 mílna með samþykki Íslands. Síðasta þorskastríðinu er lokið.

Helztu heimildir:
Atli Magnússon: Í kröppum sjó. Helgi Hallvarðsson skipherra segir frá sægörpum og svaðilförum. Örn og Örlygur 1992.

Björn Þorsteinsson: Tíu þorskastríð 1415-1976. Sögufélagið 1976.

Davíð Ólafsson: Saga landhelgismálsins. Baráttan fyrir stækkun fiskveiðilögsögunnar í 12 mílur. Sumarliði R. Ísleifsson bjó til prentunar.

Hið íslenska bókmenntafélag 1999.

Gilchrist, Andrew: Þorskastríð og hvernig á að tapa þeim: Endurminningar frá Íslandi 1957-1960. Þýðandi Jón O. Edwald. Almenna bókafélagið 1977.

Gils Guðmundsson: Slysavarnafélag Íslands 25 ára. Slysavarnafélag Íslands 1953.

Guðjón Arngrímsson: Landhelgisgæsla Íslands 1926-1996. Svipmyndir úr 70 ára sögu. Landhelgisgæsla Íslands 1996.

Gylfi Gröndal: Eldhress í heila öld. Eiríkur Kristófersson skipherra segir frá ævintýrum sínum og atburðum þessa heims og annars. Forlagið 1993.

Jón Eiríksson: Skipstjórar og skip. Skuggsjá 1971.

Sigurdór Sigurdórsson: Spaugsami spörfuglinn. Þröstur Sigtryggson skipherra segir frá. Örn og Örlygur 1987.

Sveinn Sæmundsson: Guðmundur skipherra Kærnested 1-2. Örn og Örlygur 1984-85.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM