|
1972
15.
feb. - Alþingi samþykkir útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur.
17. ág. - Alþjóðadómstóllinn í Haag kveður upp úrskurð um að
Íslendingar eigi ekki lögsögu milli 12 og 50 mílna. Ríkisstjórn Íslands
mótmælir úrskurðinum og ákveður að hunsa hann.
1. sept. - Reglugerð um útfærslu fiskveiðilögsögunnar gengur í
gildi.
Brezkir togaraeigendur biðja um herskipavernd, en fá ekki. Þrjú
vesturþýsk eftirlitsskip eru innan 50 mílnanna og eiga að
koma í veg fyrir töku togaranna.
5. sept. - Togvíraklippum fyrst beitt. Ægir klippir á víra breska
togarans Peter Scott. Skipverjar láta kolamola, járnbolta og brunaexi
dynja á varðskipinu í hefndarskipi. Í deilunni var klippt alls 82
sinnum aftan úr togurum.
1973
18. maí - Bresku togaraskipstjórarnir fá nóg og neita að veiða
innan 50 mílna án verndar herskipa. Breska ríkisstjórnin ákveður að
senda freigátur á Íslandsmið. Ákvörðunin kemur á óvart þar sem
samningaviðræður standa yfir. Íslenzk stjórnvöld neita að ræða
við Breta og banna breskum herflugvélum að lenda á íslenskum flugvöllum.
23. maí - Þrjár breskar freigátur sigla inn fyrir 50 mílna mörkin
- Lincoln, Plymouth og Cleopatra.
20. júní - Dráttarbáturinn Lloydsman gerir tilraun til að sigla á
Óðinn norður af Vestfjörðum.
27. júlí - Á fundum í Genf eru miklar umræður um fiskveiðimál og
vaxandi stuðningur við 200 mílna efnahagslögsögu.
29. ágúst - Átökin halda áfram að harðna. Banaslys verður er vélstjóri
á Ægi fær raflost.
11. sept. - Ríkisstjórn Íslands tilkynnir Bretum að ef herskip og dráttarbátar
sigli áfram á íslensk skip, verði stjórnmálasambandi slitið.
Framkvæmdastjóri Nato á viðræður við íslenska og breska ráðherra
og hvetur til að lausn verði fundin. Forsætisráðherra Bretlands lýsir
yfir vilja til að leysa deiluna.
22. sept. - Íslendingar ná frumkvæði í áróðursstríðinu við
Breta, eftir að kvikmyndatökumönnum sjónvarpsins er boðið í flug
með gæsluvélinni Sýr. Sama dag siglir brezka freigátan Lincoln tvívegis
á Ægi úti fyrir Norðfjarðarhorni og sýna myndir að hún þverbraut
allar siglingareglur.
13. nóv. - Íslendingar og Bretar semja um vopnahlé og á Alþingi er
samþykkt bráðabirgðasamkomulag sem gildir í 2 ár. Stærstu togarar
Breta eru útilokaðir frá miðunum en aðrir togarar fá takmarkaðar
veiðiheimildir. Lauk þar með deilunum. |