Varmahlíð Skagafirði,
Bakkaflöt


Hótel, Rafting, Hestaferðir,Tjaldstæð



Hótel Varmahlíð

Menning & saga


Víðimýri


Glaumbær


Arnarstapi

 


VARMAHLÍÐ
FERÐAVÍSIR
Leiðin frá Reykjavík til Skagafjarðar

 


[Flag of the United Kingdom]
In English

Rútuáætlun innan Skagafjarðar

Dagsferð frá Reykjavík


Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Kirkjur
Norðurland

Þegar ekið er niður þjóðveg 1 til austurs um Stóra-Vatnsskarð er komið í Varmahlíð í hlíðum Reykjarhóls.  Þar er upplýsingaþjónusta fyrir ferðamenn.  Jarðhiti er mikill á þessu svæði.  Hann er nýttur til ylræktar, húshitunar og sundlaugar.   Skógrækt er  stunduð í vaxandi mæli (Reykjarhólsskógur).

Árið 1931 hófst þar gisti- og veitingaþjónusta, sem hefur aukizt meö árunum. Varmahlíð er skólasetur með aðsetri náttúrgripasafns Skagafjarðar. Stutt er í byggðasafnið Glaumbæ. 
Það er upplagt að nýta Varmahlíð sem miðstöð skoðunarferða um nágrennið.  Ferð í kringum Skaga tekur lungann úr deginum.  Þá er farið um Laxárdal að Ketubjörgum , fram hjá Hrauni á Skaga, um Kálfshamarsvík og Skagaströnd (Kántríbæ).  Þá er hægt að taka stefnuna austur á bóginn um Hóla í Hjaltadal, Hofsós (Vesturfarasetrið  og pakkhúsið), líta inn á Sölvabar að Lónkoti og skoða tjald galdramannsins og snúa við á Siglufirði, sem státar af Síldarminjasafninu.
» Lesa meira

Vegalengdin frá Reykjavík er 296 km um Hvalfjarðargöng.

Hveravellir Kjalvegi 108 km, 
Blönduós 51 km. <Varmahlíð> Sauðárkrókur 24 km. Hofsós 48 km, um Blönduhlíð. Akureyri 94 km. Laugafell um Vesturárdal (F-752) 93 km.
.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM