|
Sunnar í Skagafirði er Austurdalur með Merkigili og Ábæjarkirkju.
Sumir vilja halda til fjalla og aka suður úr Skagafirði að Ingólfsskála
við rætur Hofsjökuls eða að Laugafelli og baða sig þar í heitri laug
nærri skálanum.
Aðrir áhugaverðir staðir í nágrenninu eru
Víðimýri, Glaumbær, Arnarstapi og Hegranes.
Reiðtúrar, flúðasiglingar og ferðir í Drangey eru sívinsælar.
Stangveiði er víða stunduð í héraðinu, bæði í ám og vötnum, og sumir
bregða sér til Sauðárkróks eða norður að Skagafirði til að stunda
strandveiði.
Á veturna nýtur útivistarfólk góðs skíðasvæðis og fer síðan í
afslappandi bað í sundlauginni í Varmahlíð og geta fengið nudd þar, ef
þeir óska. Rjúpna- og gæsaveiðisvæði eru vinsæl meðal
skotveiðimanna. Stangveiðimenn finna fjölda veiðivatna og áa til
að sinna hugðarefnum sínum.
Kaupfélag Skagfirðinga (N1) rekur verzlun og veitingastað í Varmahlíð
(opið 09:00-23:30 á sumrin).
Margir dvelja á Hótel Varmahlíð og skoða Keramíkversktæðið. Tjaldstæði er í Reykjarhólnum suðvestanverðum og ofar
í hlíðum hans eru sumarhús með heitum pottum og öllum hugsanlegum
þægindum. Austan Varmahlíðar eru sumarhús með rúmstæði fyrir 6
manns hvert og svefnlofti fyrir 10-12 manns.
Einhverjir örlagaríkustu atburðir
Íslandssögunnar áttu sér stað í Skagafirði auk
mestu
bardaga Sturlungaaldarinnar, og þar með
Íslandssögunnar, sem leiddu til loka þjóðveldisins.
Hinn mannskæðasti var Hauganesbardagi og síðan
Örlygsstaðabardagi, sem háður var 1238. Að honum afstöðnum lauk valdatíð
Sturlunga en þeir voru ein valdamesta ætt landsins.
|