|
Vopnafjörður er kauptún á austanverðum Kobeinstanga í innanverðum Vopnafirði,
sem kauptúnið dregur nafn sitt af. Þar hefur verið verzlunarstaður frá fornu fari og
nú eru fiskiðnaður og útgerð ásamt verzlun meginatvinnuvegirnir. Sögusvið margra
skáldsagna Gunnars Gunnarssonar er á heiðunum inn af firðinum og á aldarafmæli
skáldsins árið 1989 var afhjúpaður minnisvarði um hann á Vopnafirði.
Góð og fjölbreytt afþreying er í boði
fyrir ferðamenn á Vopnafirði og af mörgu er að taka.
Tiltölulega stutt er í góðar laxveiðiár og veiðivötn og má t.d. nefna Hofsá,
Selá. Vesturdalsá, og Heiðarvötn.
Gisti- og veitingaþjónusta
er góð og reglulegar samgöngur eru á landi og í lofti til og frá stöðum á
Norður- og Austurlandi, sem tengjast svo höfuðborgarsvæðinu.
Vegalengdin frá Reykjavík er 628 km um
Hvalfjarðargöng.
Bakkafjörður
36 km
<Vopnafjörður>
Egilsstaðir 133 km um Háreksstaðaleið, 92
km um Hellisheiði.
.
|