bjarnarfjörður nyrðri strandir strandasýsla,

Meira um Ísland


Gönguleiðir Ísland


BJARNARFJÖRÐUR NYRÐRI
.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Bjarnarfjörður nyrðri er sunnan Skjaldarbjarnarvíkur, 4-5 km langur og tæplega kílómetri á breidd.  Skriðjökull úr Drangajökli gengur niður í fjarðardalinn.  Þjóðsagan segir, að 19 manns hafi farizt í Þröskuldargili.  Árið 1955 var grafin upp kofatótt í Langanesgili í sunnanverðum firðinum.  Talið er, að þar hafi Fjalla-Eyvindur átt skjól um tíma.  Meyjarmúli er sunnan fjarðar og utan hans er Drangey auk fleiri skerja og hólma.  Langt er liðið síðan þarna var byggð, en finna má seltóttir.  Jökulsáin Bjarnarfjarðarós rennur um dalinn til sjávar.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM