|
Brimnes er
eyðibýli við norðanverðan Seyðisfjörð. Annað tveggja
fyrstu íshúsa landsins voru reist þar árið 1894 í tengslum
við útgerð í 30-40 opinna báta frá síðari hluta 19. aldar
til 1920. Byggðin lagðist af skömmu eftir vélvæðingu
bátanna og bærinn stóð einn eftir þar til hann fór í eyði
1961 eftir bruna. Fyrsti vitinn á staðnum var reistur
1908. ÁRið 1732 drap snjóflóð 9 manns, en níu dægrum
síðar fannst fjögurra ára stúlka á lífi. Fjósið barst
út á sjó. Bóndinn var meðal þeirra, sem björguðust úr
snjóflóðinu. Hann fórst síðan vofeiflega í bátsferð
til Loðmundarfjarðar átta árum síðar. Þá fór Jón bóndi
með Jens Wium, sýslumann, Jóni, lögsagnara frá Kálfafelli
auk fimm annarra frá Brimnesi. Daginn eftir fannst
báturinn rekinn og voru fjögur lík í honum. Stungusár
eftir bitjárn fundust á einu líkinu. Talið var að
komið hefði til átaka. |