|
Fannardalur
er eyðibýli inni af botni Norðafjarðar. Þar var lengi
geymdur ævagamall trékross (til 1895), sem var álitinn
helgur. Tvær tröllkonur, sem bjuggu beggja vegna
dalsins ræddu einu sinni um að spyrna saman fjöllunum.
Þá leit önnur til sjávar og sá kross rekinn í Krossfjöru og
sagði: „Fauskur er rekinn í fjarðarkjaft og ekki munum
við systur spyrnast í iljar í kvöld.” Krossinn var
geymdur í Fannardal til verndar dalnum. Fólk færði
honum gjarfir og áheit, því talið var, að gestir, sem ekkert
gæfu til hans, hrepptu óveður á leið sinni. Nú er
krossinn varðveittur á Neskaupstað og talinn vera frá 14.
aldar bænhúsi í Fannardal (árbók hins íslenzka
fornleifafélags 1974).
Droplaugarsynir, Helgi og Grímur, nutu dagverðar í Fannardal
áður en þeir fóru til bardaga við Helga Ásbjarnarson, sem
veitt þeim fyrirsát í Eyvindardal.
Fönn er jökull í u.þ.b. 1000 m.y.s. uppi af Fannardal.
Hann er aðalupptök Norðfjarðarár og var áður gönguleið milli
Norðfjarðar og Fljótsdalshéraðs. Leiðin var og er
stutt, en er ill og ógreiðfær og því sjaldan farin. |