Geitavík
er við Borgarfjörð eystri. Þar fann Gunnar
Þiðrandabani félaga sína, er hann var á flótta undan Grími
og Helga Droplaugarsonum og þótti þeir hafa lítinn hug á
liðsinni.
Jóhannes Sveinsson Kjarval (1885-1973) ólst þar upp.
Hann fæddist að Efri-Ey í Meðallandi. Hann sótti mikið
efni í verk sín til æskuslóðanna og engum dylst, að
altaristaflan í Bakkagerðiskirkju er frá þessum slóðum.