|
Halldórsstaðir
voru þríbýli áður fyrr. Þar bjó frá árinu 1894 til
dauðadags Elísabet Þórarinsson (1875-1962; skozk, kölluð
Lizzie), sem var landskunn fyrir söng. Fyrir og eftir
aldamótin 1900 bjó Magnús Þórarinsson (1847-1917) á
Halldórsstöðum ll. Hann fetaði í fótsport Skúla
Magnússonar, landfógeta, og setti upp tóvinnuvélar á bænum
árið 1884. Þær voru sleitulaust í notkun um fjögurra
áratuga skeið knúnar vatni, en eyðilögðust í eldsvoða árið
1923. Þarna var tóvinnslustöð héraðsins. Frá
árinu 1915 bjó Hallgrímur Þorbergsson (1880-1962) á bænum og
rak fjárbú með skozku fé, sem var notað til kynblöndunar og
ræktunar. |