Hjallurinn
í Vatnsfirði stendur smáspöl frá kirkju og íbúðarhúsi, niðri
við sjó. Hann var byggður í kringum 1880 og telst með
veglegustu byggingum af þessari gerð á landinu.
Grjóthlaðnir hliðarveggirnir eru mjög háir. Hjallarnir
voru geymslur fyrir veiðarfæri og fiskmeti, s.s. hertan
fisk. Þjóðminjasafnið fékk hann til vörzlu árið 1976
og hann var gerður upp sama ár.