|
Hnappavellir
eru byggðarkjarni í Öræfum. Allt fram á 20. öld voru
þar 5-7 býli. Hof er annar, stór byggðarkjarni í
sveitinni. Líkt og annars staðar standa þar enn þá
gömul torfhús, en þeim fer fækkandi. Hnappavellingar
eiga stytzta leið til sjávar miðað við aðra bæi í Öræfum,
aðeins 4 kílómetra. Í suðurbrún Öræfajökuls rísa tveir
tindar, sem heita Hnappar (1758m og 1851m). Fjallið,
sem við köllum Öræfajökul nú, var einnig kennt við þessa
Hnappa. |