|
Hólasandur
er stórt uppblásturssvæði milli Mývatns og Laxárdals.
Um hann liggur svokallaður Kísilvegur, sem var lagður til að
stytta leiðina frá Mývatni til Húsavíkur með afurðir
kísilgúrverksmiðjunnar. Fyrrum var þarna alfaraleið
frá Grímsstöðum til Laxárdals. Sandvatn er syðst á
Hólasandi. Þar er kjarr og annar gróður, sannkölluð
vin í eyðimörkinni. Nyrztu svæði sandisns eru kölluð
Randir. Þar var reist girðing fyrir landgræðslu.
Hún dró verulega úr uppblæstri, sem ógnaði Reykjaheiði.
Mikið landgræðsluátak í nafni
Húsgulls á Hólasandi. |