|
Hrollaugseyjar eru þrjár. Þær eru fjórar sjómílur frá
Breiðamerkursandi austanverðum. Hin austasta er stærst og þar er
viti, sem var byggður 1954.
Hrollaugshólar eru sunnan Reynisvalla. Nafngjari þeirra var
Hrollaugur landnámsmaður á Breiðabólsstað. Hann er sagður vera
heygður þar. Fellsá flutti farveg sinn og eyddi haugi hans.
Hólarnir eru bústaðir huldufólks. Þótt þeir séu vaxnir
töðugresi, má ekki slá þá. Eitt sinn var það gert og þá sást til
huldufólksins við þá iðju að brjóta niður hesthús og drepa nokkra
hesta. Síðan hefur ekki verið slegið í hólunum.
Hrollaugsstaðir í landi Kálfafellsstaðar eru skólasetur
Borgarhafnarhrepps.. Það var líka notað sem þing- og samkomuhús
(byggt 1945). Þarna var heimavist (1948-73). Ferðaþjónusta
er stunduð þarna á sumrin. Félagsheimilið er opið ferðamönnum
til gistingar á sumrin. |