|
Jökulmóðan
Kúðafljót er samsafn fjölda vatnsfalla af stóru vatnasvæði á
Suðurlandi. Aðalfljótið er Skaftá, sem rennur úr
Langasjó og tekur til sín fjölda lindaáa frá Lakasvæðinu.
Lindavatnið á uppruna sinn úr Síðujökli. Jökulvatnið
hverfur í sand og síast í gegnum hraunið á leið sinni til
skaftár. Þá bætast við árnar Tungufljót, Hólmsá og
stór hluti Eldvatns áður en samsafnið fær nafnið Kúðafljót
skammt norðan núverandi brúar á þjóðvegi eitt. Stór
kvísl frá Skaftá heldur áfram til Kirkjubæjarklausturs og
dreifist síðan um aura til sjávar milli Álftavers og
Meðallands.
Fljótið var oft riðið, þótt engin eiginleg vöð væru til og
velja þyrfti leiðina í hvert skipti. Það er víða djúpt
og sandbleytur eru oft miklar. Meðalrennslið er 230
m3/sek. og hámarksrennsli mældist 2000 m3/sek.
Lágmarksrennsli um ósa mældist 110 m3/sek. Margir
drukknuðu í ánni, því það var aðeins fært kunnugum.
Það var oftast riðið þar sem það er u.þ.b. 4 km breitt.
Fyrsta brúin var byggð þar 1993 og opnuð 1994.
Samkvæmt Landnámabók segir af Vilbaldi: „Hann fór af
Írlandi og hafði skip það, er Kúði hét; hann kom í
Kúðafljótsós. Sagnir herma, að Kúðafljót hafi verið
skipgengur fjörður með kaupstað á eyjunni Kúðahólma.
Þar á skiphald af járni að hafa fundizt því til sönnunar.
Silungs- og selveiði er í fljótinu. |