|
Stóra-Borg
er undir Austur-Eyjafjöllum. Þar var kirkjustaður og
stórbýli fyrrum austan Bakkakotsár. Þarna var kirkja
til ársins 1699. Um aldamótin 1200 hét bærinn
Austasta-Arnarbæli. Sjór hefur gengið jafnt og þétt á
land Stóru-Borgar, svo bærinn var fluttur austar og ofar
árið 1840. Landbrotið hefur svipt hulunni af mörgum
forngripum í Borgarhóli og margir þeirra eru í safninu að
Skógum. Allt frá árinu 1978 hefur Þjóðminjasafnið
staðið fyrir rannsókn á fornminum á staðnum. Þá þegar
var mikið horfið af moldum kirkjugarðsins og rústum
kirkjunnar. Elzta krikjan þar var líklega stafkirkja
með nokkru þrengri kór en framkirkjan. Undirstöður sex
hornstafa fundust í rúst kirkjunnar.
Hér að neðan er texti úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar um Önnu á
Stóru-Borg. Jón Trausti (Guðmundur Magnússson)
skrifaði skáldverk um hana.
Vigfús
Erlendsson á Hlíðarenda, lögmaður og hirðstjóri 1515, var
maður ákaflega ríkur og mikill höfðingi. Hann átti Guðrúnu
Pálsdóttir lögmanns á Skarði Jónssonar. Þeirra dætur voru
tvær; Guðríður kona Sæmundar í Ási og Anna var önnur. Hún
fór ógift að heiman,að Stóruborg undir Eyjafjöllum,
eignarjörð sinni, sem þá var einhver mesta jörð undir
Fjöllum. Heyrt hefi ég að þar hafi verið sextíu hurðir á
hjörum; sem var oft notað sem mælikvarði á stærð bæja.
Anna varð auðug og til marks um búrisnu hennar voru þrjú
selstæði: Í Seljunum, á Ljósadíla og á Langanesi. Sagt er að
margir hafi beðið hennar, en hún verið mannvönd og engum
tekið.
Hjá henni var smaladrengur, Hjalti Magnússon, lítilsigldur,
en félegur. Einu sinni í kalsaregni um sumar hafði Hjalti
verið yfir fé og kom heim húðhrakinn og votur. Voru þá
piltar hennar að nota rekjuna. Slógu þeir nú upp á glens við
Hjalta og buðu honum ærið fé til að fara nú heim eins og
hann var hrakinn og upp í hjá húsmóðurinni. Hjalti fór nú
heim og upp í loftstigann, en er hann rak upp höfuðið leit
Anna við honum. Varð hann þá einurðarlítill og dró sig í hlé.
Þannig fór í þrjár reisur. Anna tók eftir þessu óvanalega
einurðarleysi Hjalta og segir: „Hjalti! Hvað er þér?“ Hann
segir henni hvað vinnumenn hennar hefði lofað honum. „Tíndu
þá af þér leppana, drengur minn, og komdu upp í,“ segir hún.
Hann afklæðir sig og fer upp í. Sofa þau nú fram eftir
deginum eins og þeim líkar og er mælt henni hafði líkað
drengurinn allvel er honum fór að hlýna. Svo sendir hún til
piltanna og biður þá sjá hvar Hjalti var; heimtar nú af þeim
það þeir lofuðu og máttu þeir til að inna það af hendi, svo
var hún ráðrík.
Oft hafði Anna haft það um orð, hve augu Hjalta væru fögur.
Eftir þetta sænguðu þau saman og eignuðust börn. Þessu
reiddist Vigfús faðir hennar svo ákaflega, að hann sat um
líf Hjalta og gerði honum lífið eins óbærilegt og kostur
var. Hjalti hafðist við í ýmsum stöðum. Sagt var, að hellar
væru fyrir framan Stóruborg og væri þaðan stuttur sprettur
heiman frá Stóruborgarhólnum. Voru þessir hellar kallaðir
Skiphellrar því þar settu menn skip sín inn í. Þar hafðist
Hjalti við um stund. Hest átti hann brúnan , mesta afbragð;
var það lífhestur hans. Þetta frétti Vigfús faðir hennar og
fór þangað með margmenni. Kom hann að Hjalta þarna í
hellinum. Hafði hann ekki annað ráð en hlaupa á bak Brúni og
hleypti undan. Eltu menn hann, en Brúnn var svo góður hestur
að enginn sá á eftir honum. Þá bjó Eyjólfur í Dal frændi
hennar Einarsson og Hólmfríður Erlendsdóttur, systir Vigfúss
hirðstjóra. Eyjólfur skaut skjólshúsi yfir hann. Sumir segja
hann kæmi honum til Markúsar Jónssonar á Núpi sem átti
Sesilíu Einarsdóttir á Múla, systur Eyjólfs, en Markús
keypti trúnað bónda þess er bjó á Fit og kæmi hann honum í
Fitjarhelli og skammtaði honum mat. Mátti hann vitja hans á
vissum stað. Þarna var hann svo árum skipti, en er hann varð
sýkn nefndi hann hellirinn i virðingarskyni Paradís. Hann er
nú ýmist nefndur Paradísar- eða Fitjarhellir. Svona var mér
sagt þegar ég var ungur. Aðrir segja hann hafi haft aðsetur
sitt í helli þeim á Seljalandi er kallaður er Kverkarhellir
og verið undir vernd Seljalandsbóndans. Þrátt fyrir
ofsóknirnar, var hann þó alltaf með annan fótinn í Stóruborg
og eignaðist fleiri börn með Önnu, alls átta talsins.
Einu sinni kom Vigfús lögmaður faðir hennar í heimsókn,
þegar Hjalti var hjá henni. Þá sá hún enga aðra leið en að
læsa hann í kistu sinni. Vigfús leitaði Hjalta, þar sem
honum fannst líklegt, að hann fælist. Anna sat á kistu sinni
og lét sem ekkert væri. Vigfús spurði hana, hvað væri í
kistunni. Hún kvað það barnaplögg sín. Faðir hennar
reiddist svo mjög, að han gerði hana arflausa.
Einu sinni kom Vigfús erinda sinna utan yfir fljót með
sveinum sínum. Fljótið féll þá á millum skara og var ekki
árennilegt. Sveinar hans voru allir komnir yfir á undan
honum. Ís var báðum megin háll sem gler. Losnaði Vigfús við
hestinn og barst að skörinni fyrir framan Hamragarða. Varð
sveinum hans ráðafátt að ná honum. Í því kom maður að
ríðandi í fluginu á brúnum hesti, stökk af baki og renndi
sér fótskriðu fram að vatninu, greip í lurg Vigfúsi og
kippti honum upp á skörina; renndi sér svo skóbrunu til sama
lands, stökk á bak og reið brott. „Hver hafði svo karskar
hendur í hári mínu, sveinar?“ segir Vigfús. „Það var Hjalti
mágur þinn,“ gellur einn þeirra við. „Þegja máttir þú,“
segir Vigfús, „því þögðu betri sveinar,“ og rak honum
löðrung. Áfram hélt hann ferðinni og að Stóruborg. Sagt er
að Anna hafi búið börn sín í skrúð og skart og léti þau öll
ganga fyrir afa sinn og biðja hann að gjöra móður sína
arfgenga. Karli gekkst hugur við bæn barnanna, leizt þau
heldur féleg; þess og annars að Hjalti var búinn að gefa
honum líf með öðru eins snarræði, gjörði hann eins og þau
báðu.
Eftir þetta giftust þau með góðu leyfi Vigfúsar. Seinna
buggu þau að Teig í Fljótshlíð, langfeðgaeign hennar. Magnús
í Teig var sonur þeirra; átti Þórunni Björnsdóttir
offícíalis í Saurbæ Gíslasonar. Þeirra synir: 1) Árni á
Heylæk faðir Þuríðar konu síra Gísla Bárðarsonar á
Skúmsstöðum, föður Erlendar, föður Þrúðar konu séra Ólafs í
Dal, föður Ingiríðar, móður Jóns Guðmundssonar eldra í Mörk
er dó 1820. 2) Páll í Heynesi er átti Þórunni Einarsdóttir
frá Hólum í Eyjafirði Grímssonar. Þeirra börn: a) Björn og
b) Þórunn, átti Hallgrím lögréttumann í Kerlingardal, föður
Jóns á Borg í Meðallandi, föður Hallgríms í Kerlingardal er
átti Dómhildi Helgadóttir úr Landeyjum Ólafssonar. Þeirra
börn: aa) Klémus í Kerlingardal og bb) Hólmfríður á
Ketilsstöðum langamma mín og [cc)] Guðrún er átti Jón
Runólfsson á Höfðabrekku afa síra Jóns Austmanns.
Heimildir: Jón Árnason, íslenzkar þjóðsögur og ævintýri,
Reykjavík, 1955, IV, 200 - 202. |