|
Skjaldfannardalur
liggur austur frá Langadalsströnd, sunnan Kaldalóns, inn í hálendi
Drangajökuls austanverðs. Hann er á milli Steindórsfjalls (106m)
og Ármúla (381m). Neðanverður dalurinn er búsældarlegur og
undirlendi er talsvert. Helztu bæirnir voru Skjaldfönn og
Laugaland. Í landi hins síðarnefnda er jarðhiti, sem gerði
verulega ræktun mögulega. Innan bæjarins var skilarétt fyrir
hina fjármörgu Langadalsströnd. Laugalandsfjall (467m) klýfur
dalinn og Skjaldfannardalur heldur áfram til norðausturs, en hinn
láglendari Hraundalur til suðausturs. Gönguleið um Langahraun og
Drangajökul sunnanverðan liggur niður í Meyjardal sunnan
Bjarnarfjarðar nyrðra á Ströndum. Þá er leið upp úr Hraundal um
Svokallað Rjóður og sunnanverðar Ófeigsfjarðarheiði niður í
Ófeigsfjörð í Árneshreppi. Öll Langadalsströndin er í eyði. |