|
Steinar
eru byggðarhverfi rétt austan Holtsóss í suðurhlið
Steinafjalls. Þarna er mikil hrun og skriðuhætta og
mörg mannslíf hafa týnzt í aldanna rás. Grasgefið
engið við ósinn, veiði í honum og útræði var ástæða
byggðarinnar.
Steinahellir er norðan Holtsóss í Steinabrekkum, rétt
við þjóðveginn. Hann var þingstaður Eyfellinga á
árunum 1820-1906 og bústaður álfa. Þarna gerðu bændur
uppreisn gegn yfirvöldum 1858 vegna þess, að þeim hafði
verið skipað að baða fé sitt, þótt það hefði ekki sýkzt af
fjárkláða. Trampe stiftamtmaður og sýslumaður voru
hraktir með svipuhöggum niður að djúpu Hellisvatninu.
Þar urðu þeir nógu hræddir til að afturkalla skipanir sínar. |