|
Steinsstaðir eru eyðibýli í
Tungusveit í Lýtingsstaðahreppi, sunnan og austan Reykja. Sveinn Pálsson
(1762-1840), læknir og náttúrufræðingur, fæddist þar. Hann var iðinn við
rannsóknir á náttúru Íslands og ritstörf og var læknir góður. Báðar
greinar nam hann við háskólann í Kaupmannahöfn. Árið 1791 lauk hann prófi
í náttúrufræði og ferðaðist um Ísland til 1795 á vegum Naturhistorie Selskabet í
Danmörku. Hann varð læknir í austanverðu suðuramtinu 1799 og starfaði þar
til 1833. Lengstum bjó hann í Suður-Vík í Mýrdal við nauman kost..
Embættið var erfitt vegna vegalengda og erfiðra ferðalaga. Ferðabók hans
(1945) er mest ritverka hans. Þar eru ritgerðir og dagbækur áranna
1791-97.
Jarðhiti er við Steinsstaðalaug, þar sem Jón Kærnested (1798-36) kenndi fyrst
sund árið 1822. Árin 1943-48 voru reist tvö nýbýli og
heimavistargrunnskóli fyrir börn. Hann er orðinn að 8 bekkja
heimanakstursskóla, Sundlaug úr plasti er við skólann.
Steinsstaðabyggð stækkaði í tengslum við þessa starfsemi og heita vatnið er
notað til húshitunar. Bókasafn og stór gróðurhús voru einnig byggð.
Á sumrin er rekið gistiheimili fyrir ferðamenn. |