|
Teigur
er rétt við þjóðveginn í Hofsárdal, þar sem hann sveigir upp
á Fossheiði í átt að hringveginum á Hárekstaðakaflanum.
Sigurður Þórarinsson (1912-1983), jarðfræðingur, fæddist að
Hofi lítið eitt austar, en ólst upp að Teigi. Hann
menntaðist í Stokkhólmi og lauk þar doktorsprófi 1944.
Hann var forstöðumaður jarð- og landfræðideildar
Náttúrufræðistofnunar Íslands á árunum 1947-68 og prófessor
í jarð- og landafræði við HÍ 1968-83. Hann er meðal
þekktustu vísindamanna þjóðarinnar og heimsfrægur fyrir
rannsóknir jökla, breytinga loftslags, eldfjalla, en
aðallega öskulaga. Hann var upphafsmaður síðastnefndu
rannsóknanna, sem leiddu til mikillar einföldunar
tímatalsákvarðana (tephrachronology) með hliðsjón af
öskulögum. Sigurður skrifaði u.þ.b. 300 greinar og rit
og hélt u.þ.b. 200 erindi í háskólum, vísindastofnunum og á
ráðstefnum vítt og breitt um heiminn. Hann var skáld
gott og orti eða þýddi mörg ljóð og vísur við þekkt lög.
Hann var í stjórn margra félaga, s.s. JÖRFÍ og
Jarðfræðifélags Íslands um árabil.
Skáldkonan Erla (Guðfinna Þorsteinsdóttir; 1891-1972) bjó um
skeið að Teigi. Eftir hana liggja nokkrar ljóðabækur.
Sonur hennar, Þorsteinn Valdimarsson (1918-1977),
guðfræðingur, var einnig þekkt skáld, sem orti ljóð og
þýddi.
Veiðihús Hofsár er í Landi Teigs, sem nýtur mikilla
hlunninda vegna laxveiðinna í ánni. |