|
Varmaland
er var heimavistarskóli, nú heimanakstursskóli fyrir 10 bekki grunnskóla
í Stafholtstungum. Hann er við Stafholtsveggja- eða Veggjahver á
miklu lághitasvæði. Skömmu fyrir aldamótin 1900 var þar
húsmannsbýlið Laugaland og þá var hlaðin sundlaug, þar sem sund var
kennt árum saman. Húsmæðraskóli Borgfirðinga á VArmalandi var
reistur á fimmta tugi 20. aldar. Þar lét Samband borgfirzka kvenna
til sín taka eftir stofnun þess 1946. Sýslurnar og ríkið ráku
skólann til 1978 í sameiningu en síðan ríkið eitt. Húsmæðraskólinn
á Varmalandi var nafnið eftir það.
Stundum
var húsnæðið notað sem veitinga- og gistihús og einnig sem hressingar-
og hvíldarhæli. Heimavistarbarnaskóli starfaði frá 1954, en ú er
þar 10 bekkja grunnskóli. Þarna er sundlaug og héraðsheimilið
Þinghamar var byggt á staðnum á níunda áratugi 20. aldar.
Íþróttahús var einnig reist á kostnað nærliggjandi hreppa.
Garðyrkjubýlið á staðnum nýtur Stafholtsveggjahvers fyrir mikla
gróðurhúsarækt og litla verzlun. Á sjöunda áratugi 20. aldar var
fyrsta svepparækt á landinu hafin á Laugalandi. |