|
Vesturdalur í Skagafirði
er í miðju þriggja dala suður úr Skagafirði.
Hann er búsældarlegur nyrzt með góðu undirlendi og hálsum og sunnar er
hann hlíðagróinn og þar er ágætt beitiland. Hofsá rennur um
dalinn framanverðan og sameinast Vestari-Jökulsá undan Goðdölum.
Nokkrir bæir eru enn þá í dalnum, en fyrrum náði byggðin mun sunnar,
þar sem sjást enn þá merki um bæi. Daníel Bruun kannaði dalinn
1897 og fann rústir ellefu bæja. Hann taldi sögusagnir um
eyðingu byggðarinnar vegna svartadauða rangar og hún hafi lagzt af
smám saman, þegar landkostir rýrnuðu. Mestar jarðanna eru
kirkjustaðurinn Goðdalir, Hof og Bjarnastaðahlíð. Vegur liggur
fram dalinn, upp Þorljótsstaðafjall og yfir brú á Austari-Jökulsá að
Laugafelli og þaðan suðaustur á Sprengisandsleið.
Hraunþúfuklaustur |