|
Reykjanesfólkvangur,

Ferðakort Suðvesturland

Gönguleiðir Reykjanes

Myndir
suðvesturland
FRIÐLÝST SVÆÐI Á ÍSLANDI
|
REYKJANESFÓLKVANGUR
|
Reykjanesfólkvangur var stofnaður með reglugerð árið 1975, og
standa að honum þessi sveitafélög: Reykjavík, Seltjarnarnes,
Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður, Grindavík og Reykjanesbær.
Stjórn fólkvangs er í höndum þessara sveitafélaga í samráði við
Umhverfisstofnun.
Fólkvangurinn er um 300 km2 að stærð, langstærsta friðlýsta
svæðið sinnar tegundar hér á landi. Mörk hans að austan eru
sýslumörk Gullbringu- og Árnessýslu og að norðan tengist hann
Bláfjallarfólkvangi. Vesturmörk fólkvangsins eru vestan við
Undirhlíðar og Núpshlíðarháls í sjó við Seltanga og suðurmörk
fylgja strandlínu.
Eina stóra stöðuvatnið er Kleifarvatn. Það er afrennslislaust ofan
jarðar en sunnan þess eru litlar tjarnir og votlendi. Landið er
fjöllótt, tveir áberandi fjallshryggir liggja eftir því í NA-SV
stefnu og eru í um 300-400 m hæð yfir sjó, Núpshlíðarháls og
Sveifluháls. Brennisteinsfjöll eru austast í fólkvanginum en þar
ná nokkur fjöll 500-600 m hæð. Langahlíð er fjallshryggur sem
liggur austan og norðan við Kleifarvatn. Landið er víðast þakið
hraunum og sums staðar hafa þau runnið í sjó fram.
Við ströndina eru litlar víkur, Hælsvík og Keflavík og milli
þeirra er strandbergið Krýsuvíkurberg.
Landið er kjörið til útivistar og náttúruskoðunar.
. |
Smelltu á göngukarlana til
að opna landshlutana og þéttbýlisstaðina til að finna frekari upplýsingar!
Grænar línur tákna helztu gönguleiðirnar!

Staðirnir, sem tengjast Reykjanesfólkvangi i
stafrófsröð

 |
.

Heimsækið Grindavík

Áætlanir
Bláa lónið-Grindavík -Keflavík

Gönguleiðir
á Íslandi

Golf á
Suðvesturlandi

Víkingaskipið
Íslendingur
|