|
Við getum kallað Ísafjörð höfuðstað Vestfjarða, þar sem
lífið snýst eiginlega eingöngu um fiskveiðar og fiskvinnslu. Sigling með
sérútbúnum sjóstangaveiðibátum í hinu ótrúlega fagra landslagi Djúpsins er
ævintýri út af fyrir sig, svo ekki sé talað um gjöful fiskimið.
Það er hægt að leigja þessa báta til sérstakra
skoðunarferða í Jökulfirði, Ísafjarðardjúp og á Hornstrandir. Aflinn er eign
veiðimannanna. Ísafjörður er 488 km frá Reykjavík um Hvalfjarðargöng. Flugtíminn
frá Reykjavík er u.þ.b. 45 mín. |