|
Grindavík
er einn öflugasti útgerðarstaður landsins. Þar er mikil gróska í útgerð
og fiskvinnslu sem veita íbúum og fjölda aðkomumanna atvinnu.
Ferðaþjónusta er í örum vexti og verslun og léttari iðnaður þrífast vel.
Í Grindavík er skrúðgarðurinn Sólarvé, rétt við sundlaugina, en hann er
hlaðinn í fornum stíl og ber vitni horfinni menningu landsins.
Gamla kirkjan var reist árið 1909 (-1982), að mestu leyti úr efni
kirkjunnar að Stað (1858). Hún var afhelguð 1982 og nýtt sem
barnaheimili eftir 1988. Nálægt henni er Krosshús, þar sem Halldór
Laxnes skrifaði Sölku Völku, læknisbústaður Sigvalda Kaldalóns og
Garðhús Einars G. Einarssonar, fyrsta kaupmanns Grindavíkur.
Strandhögg Tyrkja í Grindavík
1627 er vel þekkt meðal þjóðarinnar en áður kom oft til
ófriðsamlegara aðgerða eins og þegar Íslendingar, Danir og Þjóðverjar
sameinuðust gegn Englendingum árið 1532.
Í
Svartsengi við Grindavík er mikill jarðhiti og hefur þar verið reist öflugt orkuver
sem þjónar Suðurnesjum og mun væntanlega þjóna fleiri byggðum í nánustu
framtíð. Affallsvatn frá orkuverinu myndar Bláa Lónið, sem var nýtt
til baða áður en aðstaðan var færð til nútímahorfs.
Grindavík
meira
Þorlákshöfn
(427/42) 55 km. <Grindavík>
Reykjavík
52 km,
Bláa
lónið 4 km.

Grindavík
xxxx |