|
Söfnuðurinn er samfélag trúaðra sem játa Jesú
Krist sem Drottin og frelsara. Í óslitnu framhaldi af lýð Guðs á
tímum Gamla testamentisins erum við kölluð út úr heiminum. Við
komum saman til tilbeiðslu, til sameiningar, til að fræðast um
Orðið, til neyzlu kvöldmáltíðar Drottins, til þjónustu við allt
mannkyn og til boðunar Orðsins um allan heim. Söfnuðurinn fær vald
sitt frá Kristi sem er Orðið holdi klætt, og frá ritningunum sem
eru hið ritaða Orð. Söfnuðurinn er fjölskylda Guðs sem hann hefur
tekið að sér sem sín börn. Meðlimir hans lifa á grundvelli hins
nýja sáttmála. Söfnuðurinn er líkami Krists, samfélag truar, þar
sem Kristur er sjálfur höfuðið. Söfnuðurinn er brúðurin sem
Kristur dó fyrir til þess að hann gæti helgað söfnuðinn og
hreinsað hann. Þegar Kristur kemur aftur sigri hrósandi mun hann taka
söfnuðinn til sín sem dýrlegan söfnuð, hina trúföstu um allar
aldir, þá sem hann keypti með blóði sínu. |