|
Baugstaðaós, Hróarsholtslækur,
Volalækur og Bitrulækur er allt sama vatnsfallið.
Baugstaðará rennur niður Flóann í Árnessýslu og skiptir
hreppum. Vestan hennar er Hraungerðis- og
Stokkseyrarhreppur, en austan Villingaholts- og
Gaulverjarbæjarhreppur. Áin á upptök norðan Kampholts, og heitir þá
Bitrulækur. Neðar fær hún nafnið Hróarholtslækur og neðst Baugstaðará og fellur
til sjávar (Baugstaðarós) austan Stokkseyrar. Bleikja, sjóbirtingur og lítið
eitt af laxi er í læknum, sem rennur um sléttlendi og er lengst af þröngur
graflækur, með djúpum hyljum og var notaður sem aðalskurður Flóaveitunnar.
Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 75 km.
 |