|
Mikið vatnsfall sem kemur upp á öræfum og tínist til úr
ýmsum áttum, m.a. úr Hofsjökli. Enn fremur renna í ána vatnsmiklar bergvatnsár í
óbyggðum. Allt þar til að áin var virkjuð ofan byggðar, var hún mjög lituð og
lítt fýsileg til venjulegra stangaveiði. En þar sem mikill lax gekk í hana gripu menn
til þess að húkka. Eftir virkjun hefur jökulaurinn síast að miklu leyti úr
árvatninu og veiðiskapur er að mestu hefðbundinn síðan.
Blanda er mjög gjöful og hefur gefiðum 1.000 laxa
síðustu sumur.
Neðan Ennisflúða við Blönduós er veitt með fjórum stöngum á
gömlum rótgrónum miðum, en ofan flúðanna, sem eru búnar laxastiga, hafa veiðimenn
smám saman verið að finna lendur laxins þar efra. Hefur veiði frammi í Langadal
því farið vaxandi síðustu ár. Blanda gaf 2100 laxa 1998 og var það besta árið
síðan 1975. 1999 var veiðin rétt undir 2000 löxum.
Árið 2000 var veiðin rúmlega 700 laxar.
Blöndu er skipt
í fjögur veiðisvæði. Svæði I er neðan Ennisflúða,
II
er frá
Breiðavaðslæk að heimreið að Æsustöðum.
III nær þaðan að
útfalli Blönduvirkjunar og IV
svæðið er þar fyrir framan. Blanda er 8. lengsta
á landsins 125 km.
Laxveiðin í Blöndu 2009- 2011 fór yfir
2000
laxa á 10
stöngum á dag.
Sjá:
Lokatölur
síðustu ára.
 |