|
Dalvík er fallegur fiskibær á vesturströnd lengsta fjarðar
landsins, Eyjafjarðar. Lífið þar er ekki bara fiskur, því að það er líka
stundaður blómlegur landbúnaður í Svarfaðardalnum.
Það er stutt á fiskimiðin frá Dalvík og
umhverfið svíkur engan. Báturinn er sérbúinn til sjóstangaveiði og veiðiáhöld
eru um borð. Aflinn er eign veiðimannanna og það er hægt að grilla hann að veiði
lokinni.
Dalvík er 44 km norðan Akureyrar og 414 km frá Reykjavík um
Hvalfjarðargöng. |