|
Djúpavatn er 0,15 km² stöðuvatn
sunnan Trölladyngju og Soga á Reykjanesskaga í 195 m hæð yfir sjó.
Dýpsti hluti þess er 16,7 m og það er líklega gígvatn líkt og
Grænavatn á Vesturhálsi og Arnarvatn á Sveifluhálsi. Umhverfi þessa
vatns er ákaflega fallegt og friðsælt.
Mikið er af bleikju í vatninu en hún er fremur
smá. Það var talið fisklaust þar til bleikju af Þingvallastofni var sleppt í það
í kringum 1960. Vatnið er afar vinsælt hjá fjölskyldufólki, því stangarfjöldi er
takmarkaður og því hægt að hafa vatnið út af fyrir sig. Gott hús er og á staðnum
til afnota fyrir veiðimenn.
Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar hefur
vatnið á leigu. Einnig hefur SVFR haft leyfi í vatnið í umboðssölu.
Vegalengdin frá Reykjavík er um 35
km.
 |