|
Það er varla hægt að komast lengra frá
ys og þys borgarlífsins til að njóta lífsins í dásamlegu og friðsömu
umhverfi Strandasýslu. Djúpavík er meðal afskekktustu og minnst heimsóttu
staða landsins, enda eru vegirnir þangað aðeins opnir nokkra mánuði á ári.
Báturinn, sem er notaður til
sjóstangaveiði og skoðunarferða, er vel útbúinn með veiðitækjum og öllu, sem til
þarf. Aflinn er eign veiðimannanna og er matreiddur að þeirra ósk á hótelinu.
Einnig er hægt að fara á alvöru hákarlaveiðar.
Hótel Djúpavík er í 358 km fjarlægð frá Reykjavík um
Hvalfjarðargöng. |