|
Dyrhólaós er allstórt vatn,
4,8 ferkm. Þar er talinn mikill sjóbirtingur, nokkuð árviss.
Einnig sjóbleikja, þó mismikil. Fiskur þykir tregur til að
taka agn en bændur veiða með lagnetum í ósnum og er
silungurinn talinn góðmeti. Vegurinn niður að Dyrhólaey
liggur skammt frá ósnum.
Dyrhólaós er skammt
Vík í Mýrdal sem er syðsta þorp
landins og hið eina á landinu sem, stendur við sjó en er án
hafnar. Þar var stunduð útgerð með
hjólabátum, sem óku út í sjó og síðan
upp á land með aflann og beint í vinnslu.
Vegalengdin frá Reykjavík er um 185
km. |