|
Fiskivötn eru í Bæjarhreppi í Strandasýslu. Þau eru 1,2
km², grunn og í 260 m hæð yfir sjó. Lækur fellur úr þeim til Hvalsár í norðri.
Vegur til þeirra er enginn, en 6 km ganga frá Hrafnsdal.
Geysimikið er af fiski í þeim. Bleikjan er fremur
væn og lík djúpbleikjunni í Þingvallavatni að því leyti, að innyflin eru gróin
út í holið. Sagt er, að örlítið sníkjudýr valdi þessu, en það hefur ekki
áhrif á vöxtinn og bragðgæði. Veitt er svolítið í net og himbrimar fiska líka.
Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 235 km og 35 km frá Brú í Hrútafirði. |