|
Upptök Grímsár eru í Reyðarvatni uppi
af Uxahryggjaleið. Það er þekkt bleikjuveiðivatn. Áin er býsna löng, fellur um
allan Lundareykjadal og er laxgeng að Jötnabrúarfossi, sem er fyrir ofan
dalbotninn. Veitt er á tíu stangir í ánni og auk þess eru tvær í Tunguá, lítilli
sprænu, sem rennur í Grímsá efst í dalnum. Tunguá er laxgeng að Englandsfossi.
Grímsá gefur yfirleitt á bilinu 1200 til 1800 laxa á sumri og þykir
vera ein af perlum landsins.
Hún er sérlega fjölbreytt og vel löguð fluguveiðiá. Er í henni að
finna suma þekktustu veiðihylja landsins og má nefna Laxfoss, Svartastokk og
Strengina.
Tunguáraflinn er yfirleitt inni í
ofangreindum tölum, en á góðu sumri skríður hún í 100 fiska
Grímsá var fyrrum ein mesta stórlaxaá
landsins, en
er nú með hreinni smálaxaám. Þó veiðast alltaf stórlaxar í bland og oft má sjá
ægileg ferlíki í Hörgshyl ofanverðum, rétt ofan brúarinnar við
Fossatún.
Laxveiðin Í Grímsá árið 2004 skreið yfir
1100
laxa á
8-10
stöngum á dag, 2008 var veiðin yfir 2200 laxar.
Sjá:
Lokatölur
síðustu ára.
 |