|
Gripdeild er á Jökuldalsheiði í N-Múlasýslu. Það er 0,21 km²,
dýpst 8 m og í 561 m hæð yfir sjó. Til þess renna smálækir úr umhverfinu og frá
því rennur Víðidalsá í ótal hlykkjum til Jökulsár á Brú. Jeppafær vegur liggur
að vatninu. Í því er mjög góð bleikja.
Gripdeild tilheyrir Eiríksstöðum, þar sem Árni Oddson fékk hestinn Brún,
sem með yfirburðum sínum varð örlagavaldur íslensku þjóðarinnar.
Það veiðist ekki á stöng í þessu
vatni, sem er einsdæmi í veiðivötnum, en netaveiði er ágæt. Fiskurinn er bæði
stór og góður og stofninn í ágætu jafnvægi. Norðan við vatnið er
eyðibýlið Veturhús. Jeppavegur liggur að vatninu. Hvort þar hefur búið
Bjartur í Sumarhúsum, málvinur Laxness, vissi víst enginn með vissu,
nema skáldið í Gljúfrasteini.
Vegalengdin frá Reykjavík um Norðurland er
585 km um Hvalfjarðargöng og rúmir 100 km frá
Egilsstöðum. |