|
Hafravatn er 1,02 km²
stöðuvatn í 76 m hæð yfir sjó innan marka Mosfellssveitar, skammt
sunnan Reykja. Mesta dýpi þess er 28 m. Seljadalsá rennur í það að austan en Úlfarsfellsá úr því til vesturs. Við
vatnið eru rústir gamallar fjárréttar, sem voru notaðar fram á 8.
áratuginn, og fjöldi sumarbústaða.
Mikið er af smárri bleikju í vatninu og reitingur
af urriða, sem er snöggtum vænni. Lax kemst og í vatnið um Korpu, en það veiðast
ekki margir slíkir fiskar í vatninu þó mörgum þyki gaman að eiga vonina.
Vegalengdin frá Reykjavík er um 14 km.
 |