|
Hamarsá er í Geithellnahreppi í Suður-Múlasýslu. Hamarsá
á upptök sín við Þrándarjökull og í drögum Hamarsdals. Hún rennur eftir
endilöngum Hamarsdal,og dragast til hennar smáár og lækir uns hún fellur í
Hamarsfjörð, sem er ásamt Álftafirði aðeins lón, innan við langt sjávarrif.
Veiðin er sjógengin bleikja, mjög misjöfn að
stærð og veiðast oft stórir fiskar innanum. Lax hefur fengist í Hamarsá.
Veiðistaðirnir eru margir og veiðilegir, en þar sem Hamarsá er ekki fiskgeng nema um
6 km. frá ósnum, er skammt að fara til veiða. Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b.
560 km og um 12 km frá Djúpivogi.
 |