|
Héðisnsfjarðarvatn er í 5-6 km löngum og
1 km breiðum og grösugum dal, sem var í byggð fram til 1857. Það er 1,7 km² í 3 m
hæð yfir sjó. Vestan dalsins er Hestfjall, þar sem DC-3 flugvél Flugfélags Íslands
fórst 29. maí 1947 og með henni farþegar og áhöfn, 25 manns. Auðveldasta leiðin
til Héðinsfjarðar er á sjó (35-45 mín. frá Siglufirði), ella er yfir há
fjallaskörð að fara með allt á bakinu.
Slysavarnarskýli er í Héðinsfirði
.Það er dálítil vatnableikja og mikil og væn sjóbleikja í vatninu, 1-5 pund.
Hún gengur í það síðla sumars. Mikið dýralíf er við vatnið og fuglar
spakir. Sögur eru til af rebba, sem hefur heimsótt veiðimenn alls
óhræddur og sótt sér fisk fyrir lítið. Þetta vatn er ekki mikið
stundað, en á þó sína áhangendur, sem sækjast eftir friði og góðri
veiði. Veiðihús er við norðurenda vatnsins.
Vegalengdin frá Reykjavík til Ólafsfjarðar
er 456 km og Siglufjarðar 401 km um Hvalfjarðargöng.
 |