|
Hlíðarvatn er í Sauðaneshreppi í N-Þingeyjarsýslu. Það
er 0,24 km², grunnt og 9 m hæð yfir sjó. Lækir úr því renna um Krossós til
sjávar.
Fiskurinn í vatninu er afbragðsgóður, bæði
bleikjan og urriðinn. Líklega er sjógenginn fiskur í flestum vötnunum á þessu
svæði, því að hann er líkur frá einu vatni til annars. Fjöldi stanga er ekki
takmarkaður. Lengi hefur verið veitt í net í vatninu.
Vegalengdin frá Reykjavík er 641 km um Hvalfjarðargöng og 14 frá
Þórshöfn.
 |