|
Hlíðarvatn er rúmlega 3,3 km² stöðuvatn í Selvogi
vestanverðum í 1 m hæð yfir sjó. Mesta dýpi þess er 5 m. Afrennsli þess er
Vogsós. Allmikið er af fiski í vatninu, en hann er fremur smár. Langmest er það
bleikja, bæði sjóalin og vatnableikja, en urriða varður aðeins vart.
Maðkveiði er
bönnuð í vatninu og mest veiðist á flugu. Veiðihús er við vatnið. Frá vatninu
blasir við hluti hinnar hafnlausu suðurstrandar landsins og ein merkilegasta kirkja
þess, Strandarkirkja.
Vegalengdin frá Reykjavík u.þ.b. 60 km um Krýsuvík og 15 km lengra um Þrengsli.
 |