Hnausatjörn í Vatnsdal er u.þ.b. 400 m á kant. Veiðileyfi
gilda í tjörninni allri og leyfðar eru 4 stengur á dag. Veiðin er aðallega bleikja,
en staðbundinn urriði og sjóbirtingur sjást af og til.
Silungurinn er að jafnaði 1 pund. Hnausatjörn er
vinsæl veiðistöð, enda er aðbúnaður góður við vatnið, fallegt lítið
veiðihús uppi í hlíðinni fyrir ofan vatnið og gnótt fiskjar.
Vegalengdin frá
Reykjavík er 226 km um Hvalfjarðargöng og 18 km frá Blönduósi.