|
Hnúksvatn er í Jökuldalshreppi í N-Múlasýslu. Það er 0,72 km²
og í 595 m hæð yfir sjó. Lítið sem ekkert vatn rennur til þess ofanjarðar, en
frárennslið er Hnúksá, sem fellur til Jökulsár á Brú.
Jeppaleið liggur til vatnsins, sem er í lægð á
milli fjalla, Kiðufell í norðri og Þórfell í suðri. Sæmilegasta bleikja er í
vatninu. Eigendur stunda netaveiði í vatninu.
Vegalengdin frá Reykjavík er
u.þ.b. 624
km um Hvalfjarðargöng og um 70 frá Egilsstöðum. |