|
Höfðavatn er í Höfðahreppi í Skagafjarðarsýslu. Það er 10
km², vatnsflöturinn er við sjávarmál og mesta dýpi er 6,4 m. Meðaldýpið er 3,9 m.
Veiðileyfi gilda á milli Merkjavíkur að sunnan og Gljúfurár að norðan og fjöldi
þeirra er ekki takmarkaður. Veiðin er vatnableikja og sjóbleikja , sem vegur ½-3
pund.
Veiðitíminn er frá febrúar til september, enda nokkur
dorgveiði síðla vetrar. Góður vegur er alveg niður að vatni. Umhverfi
Höfðavatns er skemmtilegt. Drangey, Málmey og Þórðarhöfði blasa við. Í Málmey mátti enginn búa
lengur en tvo áratugi, ella átti húsfreyjan að hverfa. Vegalengdin frá
Reykjavík er 350 km um Hvalfjarðargöng og 7 km frá Hofsósi.
 |