Hólaá rennur úr Laugarvatni í Hagaós, þar sem hann fellur frá Apavatni. Hún er
mjög góð bleikjuveiðiá með 2-4 punda fiskum.Í nágrenni Laugarvatns hefur risið mikil
sumarbústaðabyggð og eiga mörg stéttarfélög bústaði þar sem og einstaklingar.
Góð tjaldsvæði er við Laugarvatn og því stutt í Hólaá. Veiðileyfi fást m.a. í
Útey og að Laugardalshólum.