|
Hópið er á mörkum A.- og V.-Húnavatnssýslna og er fimmta stærsta
stöðuvatn landsins. Í því gætir flóðs og fjöru, þannig að það er
misstórt eftir sjávarföllum, 29 til 44 ferkílómetrar. Það er mjög mikið
af fiski í vatninu. Mikið er af sjóbirtingi,
urriða, vatnableikju og sjóbleikju. Einnig eru miklir möguleikar á
laxveiði þar sem þúsundir fiska fara í gegnum vatnið áleiðis í
laxveiðiárnar. Algeng þyngd sjóbleikju og birtings er 1-6 pund.
Tvær kunnar veiðiár renna í Hópið, Gljúfurá og Víðidalsá, en hún
er í flokki betri lax- og silungsveiðiáa landsins. Þingeyrarsandur
skilur hópið frá hafi og mikil upplifun er að ríða yfir Hópið af
Þingeyrasandi að Vaðhvammi undir Myrkubjörgum. Margir góðir veiðistaðir eru
við Hópið. Góð veiðisvæði eru við Ásbjarnarnes, Skollanes og einnig út
með Myrkubjörgum, en þar er ekki eins greitt yfirferðar. Jeppaslóð liggur
meðfram Nesvík upp á Nesbjörg. Af henni er gönguleið niður að
Steinbryggju og Vaðhvammi, sem eru þekktir veiðistaðir. Steinninn er
vinsæll veiðistaður og einnig Kofakrókur, sem er nýtt heiti sem rekja má til
hins kunna matreiðslumanns Rúnars Marvinssonar og er hann norðan við
girðingu milli Gottorps og Ásbjarnanes. Austan við vatnið eru
veiðistaðir við Refsteinsstaði og Gljúfurá. Einnig hefur veiðzt vel að
austanverðu, t.d. út af bænum Haga, sérstaklega, þegar veitt er frá báti.
Einnig benda nöfn eins og Veiði- og Silungav ík til þess, að þar sé nokkur
veiðivon, en að undanförnu hefur lítið sem ekkert verið prufað að veiða á
þessum stöðum. Fiski hefur ekki verið sleppt í Hópið sjálft en
sleppingar hafa verið stundaðar í árnar, sem renna til þess, áratugum saman.
Að
Ásbjarnarnesi er gott
veiðihús með útsýni yfir Hópið. Þar eru
salerni
og húsið rúmar
15-20 manns
í kaffi.
Húsgjald er innifalið í verði veiðileyfa en gisting er ekki
leyfð.
Við veiðar skal nota agn, lifandi eða dautt, sem fiskurinn eltir og
tekur. Aldrei má
nota krækjur né annað sem festir í fiski að honum óvörum og án þess hann
elti það.
Veiðitímabil er frá 10. apríl – 15.
september.
Veiðitími er 12 klst. á dag.
Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b.
235 km og 25 km
frá Blönduósi.
. |